Óvissustig almannavarna er enn í gildi á Norðurlandi eystra og Norðurlandi vestra og enn er mikil hætta á truflunum í tengivirki Landsnets í Hrútatungu vegna seltu. Því hefur verið ákveðið að hreinsa tengivirkið í nótt og verður rafmagnslaust vegna þessa frá kl. 00 til 06 á svæðinu sem fætt er frá Hrútatungu.
Þetta er meðal þess sem kemur fram í stöðuskýrslu frá samhæfingarstöð almannavarna vegna óveðursins sem gekk yfir landið 10. til 12. desember og eftirköst þess.
Þar segir að reynt verði að halda rafmagni inni þar sem hægt er vegna ástandsins í Hrútatungu og að lögð verði áhersla á svæði sem ekki eru með hitaveitu.
Að öllum líkindum verður rafmagn á Hvammstanga og Laugarbakka en það gætu orðið rafmagnstruflanir þar. Sama á við um notendur sem tengdir eru við Glerárskóga á Vesturlandi.
Enn eru nokkrar bilanir í dreifikerfi Rarik og búast má við truflunum á afhendingu rafmagns á meðan ástandið varir.
Enn fremur segir að töluvert eignatjón hafi orðið vegna veðursins og muni taki nokkurn tíma að taka það saman og ólíklegt að allt sé komið í ljós.