Rafmagnslaust er frá Núpi til Lundar á Norðausturlandi þar sem veður er slæmt. Staur brotnaði í Öxarfirði og vír slitnaði vegna ísingar. Viðgerð stendur yfir og samkvæmt upplýsingum frá Steingrími Jónssyni, deildarstjóra netreksturs hjá RARIK á Norðurlandi, verður rafmagn komið á fyrir miðnætti.
Óvissustig almannavarna er enn í gildi á Norðurlandi eystra, Norðurlandi vestra vegna eftirmála óveðursins í síðustu viku. Staðan á flutningskerfi rafmagns er enn víða viðkvæm nú tíu dögum eftir að ofsaveðrið gekk yfir og veður tók aftur að versna fyrir norðan í dag og útlit er fyrir slæmt veður fyrir austan á morgun.
Steingrímur segir að enn sem komið er hafi flutningskerfið sloppið ágætlega í veðrinu sem nú gengur yfir. Ísing sé þó farin að myndast aftur á raflínum og staðan er áfram viðkvæm.
Enn er mikil hætta á truflunum í tengivirkinu í Hrútatungu vegna seltu og því hefur verið ákveðið að hreinsa tengivirkið í nótt. Raforkunotendur í Dalbyggð og Skógarströnd mega búast við rafmagnstruflunum frá miðnætti til klukkan 6 í fyrramálið vegna þessa.
Reynt verður að halda rafmagni inni þar sem hægt er og lögð verður áhersla á svæði sem ekki eru með hitaveitu. Að öllum líkindum verður rafmagn á Hvammstanga og Laugarbakka, en það gætu orðið rafmagnstruflanir þar. Sama á við um notendur sem tengdir eru við Glerárskóga á Vesturlandi. Keyrt verður varaafl, en það geta orðið truflanir á afhendingu.