Brösuglega hefur gengið að koma póstinum til skila, sérstaklega á Norðurlandi, í óveðrinu síðustu daga. Pósturinn þar engu að síður að komast til skila fyrir jól og í gærkvöldi, þegar færðin var afleit á Öxnadalsheiðinni, aðstoðuðu mokstursbílar Vegagerðarinnar flutningalest að komast yfir heiðina.
„Pósturinn þarf að berast fyrir jól,“ segir í færslu Vegagerðarinnar á Facebook. Flutningabílarnir höfðu beðið í fimm klukkustundir þegar aðstoðin barst.
Búast má við því að færð spillist enn frekar um helgina og sagði Birta Líf Kristinsdóttir, veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands, í samtali við mbl.is fyrr í dag að ef fólk ætlar sér að ferðast á milli landshluta fyrir jól þá ætti það að íhuga alvarlega að bíða með ferðalög fram á mánudag, Þorláksmessu.
Gul viðvörun er í gildi fyrir Vestfirði, Strandir, Norðurland, Austurland, Suðausturland og Miðhálendi og vegum hefur verið lokað á Norðurlandi. Á morgun má búast við því að hringveginum verði lokað á Suðausturlandi, frá Lómagnúp að Jökulsárlóni sökum hvassviðris.
Viðvörun: Búast má við að Hringvegurinn verði lokaður á Suðausturlandi, frá Lómagnúp og að Jöklulsárlóni, á morgun laugardag frá því kl. 08:00 og a.m.k. fram að miðnætti. #færðin
— Vegagerðin | Iceland Roads (@Vegagerdin) December 20, 2019