Unnið við afar erfiðar aðstæður

Unnið er að viðgerð á Fljótsdalslínu en ísing er á …
Unnið er að viðgerð á Fljótsdalslínu en ísing er á rafmagnslínum á Hallormsstaðahálsi. Ljósmynd Landsnet

Viðgerð á mastri á Fljótsdalslínu 4 sem skemmdist var undirbúin í gær og viðgerðarefni flutt á staðinn. Sjálf viðgerðin hófst í gærkvöldi og mun standa fram eftir degi. Að því loknu verður leiðari aftur hengdur upp í mastrið. Ef allt gengur vel er gert ráð fyrir að viðgerð ljúki í kvöld en aðstæður á staðnum eru mjög erfiðar og gæti viðgerð dregist fram á laugardag. Þar sem ísingaveður er á Hallormsstaðahálsi verður sérstök ísingavöktun á Fljótsdalslínu 3 á meðan ástandið varir, samkvæmt upplýsingum frá Landsneti.

Í gær var ákveðið að undirbúa frekari hreinsun seltu í tengivirkinu í Hrútatungu. Greining með hitamyndavélum sýnir að enn er selta í virkinu og því aukin hætta á útslætti. Tengivirkið er áætlað úr rekstri vegna þessa frá miðnætti aðfaranótt laugardags og tekur hreinsunin nokkrar klukkustundir. Aðgerðin er undirbúin í samvinnu við Rarik.


Laxárvatnslína, milli Hrútatungu og Laxárvatns, hefur verið að fara út í morgun en ekkert straumleysi hefur verið á hjá notendum vegna þessa.

Viðgerð á Kópaskerslínu lauk á sjötta tímanum í gær og var hún aftur komin í eðlilegan rekstur laust fyrir klukkan 19.00.

Laxárlína 1
Beðið verður með viðgerð á Laxárlínu 1 um sinn. Suðurnesjalína 1 var tekin út klukkan 10 í gær þar sem skipta þurfti um skemmdan einangrara við Fitjar. Aðgerð tókst vel og var línan aftur komin í rekstur um tveimur og hálfum tíma síðar.

Á vef RARIK kemur fram að enn séu nokkrar bilanir í dreifikerfi RARIK og búast megi við truflunum á afhendingu rafmagns á meðan þetta ástand varir.

mbl.is