Forsætisráðherrann skilur reiði fólks

Scott Morrison hefur verið afar efins um loftslagsbreytingar. Hópur fólks …
Scott Morrison hefur verið afar efins um loftslagsbreytingar. Hópur fólks kom saman í Sydney um helgina þar sem hann og hans skoðanir voru gagnrýndar. AFP

Scott Morri­son, for­sæt­is­ráðherra Ástr­al­íu, hef­ur beðist af­sök­un­ar á því að hafa valdið „mikl­um kvíða“ með því að fara í frí á meðan gróðureld­ar geisuðu heima fyr­ir. Einn lét lífið í gær og eins er saknað.

Alls hafa níu látið lífið og tæp­lega 800 heim­ili eyðilagst það sem af er vegna eld­anna. Ástandið er verst í fylk­inu New South Wales (NSW) en þar er Syd­ney stærsta borg­in.

Eins og áður hef­ur komið fram kom Morri­son fyrr heim úr fjöl­skyldu­fríi til Hawai í lok síðustu viku eft­ir að hafa verið harðlega gagn­rýnd­ur fyr­ir að fara á meðan meðan kjar­reld­ar og hita­bylgja ógna lífi og eign­um fjöl­margra Ástr­ala.

„Ég skil það vel að fólk hafi verið ósátt við fríið mitt á meðan marg­ir voru und­ir miklu álagi hér,“ sagði Morri­son í dag.

Hann ræddi við slökkviliðsmenn og bað þá af­sök­un­ar á frí­inu.

Eldar í grennd við Sydney.
Eld­ar í grennd við Syd­ney. AFP

For­sæt­is­ráðherr­ann hef­ur verið gagn­rýnd­ur fyr­ir úrræðal­eysi gagn­vart eld­un­um og einnig fyr­ir aðgerðarleysi vegna lofts­lags­breyt­inga. Hann viður­kenndi að lofts­lags­breyt­ing­ar hefðu áhrif á hækk­andi hita­stig í land­inu en sagði breyt­ing­arn­ar ekki hafa bein áhrif á skógar­eld­ana.

AFP

Vís­inda­menn hafa varað við því að mik­ill hiti og þurrk­ur geti orðið til þess að skógar­eld­ar í Ástr­al­íu verði tíðari og stærri. Hit­inn í land­inu hef­ur farið í rétt tæp­ar 50 gráður á síðustu dög­um og sums staðar hef­ur ekki rignt í marga mánuði, jafn­vel heilt ár.

Shane Fitzsimmons, slökkviliðsstjóri í NSW, sagði að gær­dag­ur­inn hefði verið afar slæm­ur og að ástandið myndi ekki batna á næst­unni.

AFP
mbl.is

Bloggað um frétt­ina