Öll höfum við litið í spegil daginn eftir neyslu á áfengi, salti og sykri og séð hvernig húðin virðist bólgna upp. Neysla á slíkum mat kann að fara fram úr öllu hófi í desember og því er ágætt að kunna að lágmarka ásýnd syndanna á andliti og líkama.
1. Drekktu grænt te
Grænt te er talið örva efnaskipti líkamans og stuðla að aukinni fitubrennslu. Það er einnig talið vatnslosandi og hreinsandi svo margir vilja meina að neysla á 2-4 tebollum á dag hafi sérlega jákvæð áhrif. Matcha-te er 10-15 sinnum öflugra en annað grænt te og inniheldur 137 sinnum meira af andoxunarefnum svo það er tilvalið að notast við það.
2. Auktu neyslu á andoxunarefnum
Andoxunarefni hafa ýmis jákvæð áhrif á okkur en nýleg rannsókn á slíkum efnum sýndi að andoxunarefni kunna að draga úr framleiðslu fitufruma á þríglýseríði. Bláber búa yfir miklu magni af andoxunarefnum og því tilvalið að gæða sér á þeim yfir hátíðirnar.
3. Hugaðu að fótunum
Oft sjáum við bjúg á ökklum okkar og fótum. Jafnvel stöndum við lengi á háum hælum og eru fæturnir þar að auki þreyttir. Fótakremið frá Önnu Rósu grasalækni er frábært til að kæla fæturna og mýkja. Það inniheldur m.a. piparmyntu, tea tree-olíu, vallhumal og kamillu.
4. Bað með birki
Birki hefur oft þótt vatnslosandi og hreinsandi. Það er því ávallt góð hugmynd að láta renna í bað og nota Birki-baðsaltið frá Angan en það inniheldur íslensk birkilauf ásamt upplífgandi ilmkjarnaolíum úr bergamíu og piparmyntu. Þessi blanda hreinsar húðina og endurnýjar líkamann.
5. Kældu augnsvæðið
Það er þekkt ráð að finna eitthvað kalt og leggja yfir augnsvæðið til að ná burt þrota og bólgum. Sumir kæla einfaldlega skeiðar og leggja yfir augun eða bleyta þvottaklút með köldu vatni og leggja yfir augun. Sumir vilja þó fríska upp á augnsvæðið og vinna gegn fínum línum og hrukkum í leiðinni. Þá er tilvalið að prófa BIOEFFECT Eye Mask Treatment en þetta eru skífur sem búa yfir EGF-frumuvaka og hefur sannreynda virkni gegn hrukkum.
6. Rakagefandi og kælandi andlitsmaski
Sláðu tvær flugur í einu höggi með því að geyma rakagefandi gelmaska í kæli og svo þegar þú berð hann á þig finnurðu hvernig húðin lifnar við. SEPAI Moist Relief Mask er andlitsmaski sem veitir húðinni mikinn raka og sefar hana. Inniheldur m.a. hýalúrónsýru, rósablöð, mistiltein og japanska blóðgrasrót.
7. Örvaðu sogæðakerfið
Með því að nudda líkamann örvarðu sogæðakerfið en það hreinsar óæskileg efni úr líkamanum. Þurrburstun er til dæmis frábær leið til að örva sogæðakerfið og vinna gegn appelsínuhúð. Þú nuddar húð þína áður en þú ferð í sturtu eða bað. Þurrburstar fást t.d. í Jurtaapótekinu og Heilsuhúsinu.
8. Nuddaðu andlitið
Það er fátt jafn slakandi og endurnærandi og andlitsnudd. UpLift-andlitsnuddrúllan frá Nure Jamie er í miklu eftirlæti hjá stjörnunum í Hollywood en þessi rúlla er þakin 24 túrmalínsteinum og þú rúllar þessu yfir andlitið upp á við. Húðin verður þéttari, tónaðri og endurlífguð.