Landsnet virkjar viðbragðsáætlun vegna veðurs

Landsnet hvetur alla til að fylgjast með tilkynningum á vef …
Landsnet hvetur alla til að fylgjast með tilkynningum á vef Landsnets, á Facebook eða í Landsnetsappinu. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Landsnet hefur undirbúið viðbrögð vegna veðurspár um djúpa lægð sem gengur yfir landið á morgun og verður viðvarandi fram á fimmtudag.

Í tilkynningu frá Landsneti segir að með lægðinni, sem stefnir á Reykjanes á morgun, aukist veðuráraun á raforkukerfið. 

Eldingahætta

„Eldingahætta verður með meginskilum lægðarinnar í fyrramálið einkum suðvestan- og sunnanlands. Með vestanáttinni í kjölfarið er reiknað með umtalsverðu álagi um sunnan- og vestanvert landið af völdum vinds, ísingar og seltu sem verður viðvarandi fram á fimmtudag.“

Þau landsvæði sem eru berskjölduð fyrir seltu hafa verið kortlögð og unnið er að undirbúningi hreinsunar í góðu samstarfi við slökkvilið á svæðunum sem um ræðir.

Landsnet hvetur alla til að fylgjast með tilkynningum á vef Landsnets, á Facebook eða í Landsnetsappinu.

mbl.is