Mama June hent út af hóteli

Mama June var hent út af hótelinu.
Mama June var hent út af hótelinu. Skjáskot/Instagram

Hrakfarir raunveruleikastjörnunnar Mama June og kærasta hennar Geno halda áfram en þeim var hent út af hóteli í Georgíu-ríki í Bandaríkjunum um helgina. 

Ástæðan er sú að þau gátu ekki borgað reikninginn fyrir hótelherbergið en hann hljóðaði upp á 2 þúsund bandaríkjadali eða um 245 þúsund íslenskar krónur. 

June og Geno hafa búið á hótelum síðastliðna mánuði. Hún hefur dvalið á mismunandi herbergjum á viðkomandi hóteli, Residence Inn Marriott í McDonough, síðan um þakkargjörðarhátíðina í nóvember. 

Hún hefur verið með opinn reikning í allan þennan tíma en um helgina þurfti hún að greiða reikninginn. June segist hafa neitað að greiða reikinginn en samkvæmt heimildum TMZ hafði hún hinsvegar ekki efni á því. 

mbl.is