Eldið gæti náð 25 milljörðum króna

Útflutningstekjur af fiskeldi hafa aukist mikið milli ára og stefna …
Útflutningstekjur af fiskeldi hafa aukist mikið milli ára og stefna útflutningsverðmæti greinarinnar í 25 milljarða króna á árinu 2019. mbl.is/Helgi Bjarnason

Útflutn­ings­verðmæti eldisaf­urða fyr­ir fyrstu ell­efu mánuði árið 2019 nema tæp­um 23 millj­örðum króna sem er aum 92% aukn­ing milli ára eða 72% ef tekið er til­lit til geng­isáhrifa, að því er fram kem­ur á vef Sam­taka fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi.

Í nóv­em­ber voru út­flutn­ings­verðmæti eldisaf­urða 2,9 millj­arðar króna eða um 100 milj­ón­ir á dag. Er um að ræða næst mestu verðmæti í stök­um mánuði, en mest voru verðmæt­in í októ­ber þegar var flutt út fyr­ir um 3,1 millj­arð.

Á vef sam­tak­anna seg­ir að gert hafi verið ráð fyr­ir að út­flutn­ings­verðmæt­in myndu nema um 24  millj­örðum króna fyr­ir árið allt, en miðað við stöðuna sé talið lík­legt að þau verði um 25 millj­arðar króna.

„Efna­hags­leg hag­sæld Íslend­inga er, sem endra­nær, veru­lega háð út­flutn­ingi og því fleiri sem stoðirn­ar eru og um leið fjöl­breytt­ari, því meiri verður hún. Slík­ur ábati ætti að vera enn aug­ljós­legri eft­ir þau áföll sem dundu yfir stærstu út­flutn­ings­grein­ar lands­ins á nýliðnu ári og áhrif þeirra á þjóðarbúið. Gef­ur því auga leið að of­an­greind þróun í fisk­eldi er afar kær­kom­in bú­bót við út­flutn­ings­flóru þjóðarbús­ins,“ seg­ir í færsl­unni.

Bent er á að fisk­eldi er þó enn tölu­vert minna en aðrar út­flutn­ings­grein­ar, hins veg­ar séu fyr­ir hendi tölu­verð tæki­færi til þess að auka út­flutn­ings­tekj­urn­ar í framtíðinni.

mbl.is

Bloggað um frétt­ina