Leita upplýsinga um verð á nýju skipi

Árni Friðriksson RE leggur up í leiðangur.
Árni Friðriksson RE leggur up í leiðangur. mbl.is/Sigurður Bogi

Grunn­hönn­un að nýju skipi til haf­rann­sókna er lokið og fyr­ir­hugað er að ljúka smíðalýs­ingu á næstu 2-3 mánuðum. Óskað hef­ur verið eft­ir verðhug­mynd­um hjá nokkr­um skipa­smíðastöðvum, án nokk­urra skuld­bind­inga.

Sig­urður Guðjóns­son, for­stjóri Haf­rann­sókna­stofn­un­ar, seg­ir að von­andi verði hægt að bjóða verk­efnið út í vor og ljúka samn­ing­um fyr­ir haustið. Frá þeim tíma sé gert ráð fyr­ir að smíðin taki um tvö ár.

Í verk­efni á öll­um tím­um árs­ins

Að sögn Sig­urðar er miðað við 60-70 metra langt, öfl­ugt skip sem hægt verði að senda í leiðangra á öll­um tím­um árs­ins. Verk­efn­in séu mikið í út­haf­inu við mæl­ing­ar á loðnu, mak­ríl og síld svo dæmi séu nefnd og Haf­rann­sókna­stofn­un þurfi skip sem ráði við erfiðar aðstæður. Nú sé til dæm­is fyr­ir­hugað að loðnu­mæl­ing­ar hefj­ist á mánu­dag, „en veðurút­litið er alls ekki björgu­legt,“ eins og Sig­urður orðar það í Morg­un­blaðinu í dag.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: