Óveðursútköll og fleira

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins hefur haft í nægu að snúast í nótt og er meðal annars á vakt við Hafnarfjarðarhöfn þar sem stórt flutningaskip losnaði frá bryggju í morgun.

Slökkviliðið sinnti þremur minni háttar óveðursútköllum í nótt og eins fóru slökkviliðsmenn frá höfuðborgarsvæðinu austur fyrir fjall til að aðstoða í tengslum við björgunaraðgerðir á Suðurlandi þar sem 39 manna hópi var komið til bjargar.

mbl.is