Vegir lokaðir vegna snjóflóðahættu

Eins og sjá má á korti Vegagerðarinnar er víða ófært …
Eins og sjá má á korti Vegagerðarinnar er víða ófært á Norðurlandi. Kort/Vegagerðin

Snjóflóð hafa fallið á bæði Siglufjarðarveg og Ólafsfjarðarveg og eru báðir vegirnir lokaðir vegna snjóflóðahættu og ófærðar.

Spáð er áframhaldandi suðvestanáttum með éljagangi, snjókomu og skafrenningi víða á landinu fram á fimmtudagskvöld. Þó verður úrkomulítið á Norðaustur- og Austurlandi, að því er segir á facebooksíðu Veðurstofu Íslands.

Við þessar aðstæður heldur áfram að safna í gil og hlíðar sem eru hlémegin við vindáttina. Því má búast við varasömum snjóalögum og snjóflóðahættu til fjalla.

Ekki er talin vera snjóflóðahætta í byggð eins og er, en fylgst verður með stöðunni. Hér má lesa nánar um snjóflóðaspá.

Veðurvefur mbl.is

mbl.is