Færa seiðaeldið úr Kollafirði í Vogana

Vogavík. Stofnfiskur áformar að stækka kynbótastöðina í Vogum.
Vogavík. Stofnfiskur áformar að stækka kynbótastöðina í Vogum. Ljósmynd úr tillögu að matsáætlun

Stofn­fisk­ur hyggst stækka kyn­bóta­stöð sína við Voga­vík í Vog­um. Í til­lögu að matsáætl­un kynn­ir fyr­ir­tækið áform um að auka fram­leiðslu lax­eld­is úr tæp­um 300 tonn­um í 450 tonn á ári.

Inni í því er falið áfram­hald­andi eldi á kyn­bóta­fiski til hrogna­fram­leiðslu og eldi á laxa­seiðum sem ætl­un­in er að hefja í stöðinni. Vegna stækk­un­ar­inn­ar þarf að auka vinnslu á grunn­vatni úr 972 í 1.172 lítra á sek­úndu, að því er fram kem­ur í Morg­un­blaðinu í dag.

Við und­ir­bún­ing fram­kvæmd­ar­inn­ar vakti Skipu­lags­stofn­un at­hygli á að vatns­vinnsla vegna nú­ver­andi starf­semi er rúm­lega þre­falt meiri en gert var ráð fyr­ir í um­hverf­is­mati á sín­um tíma. Þá hef­ur Um­hverf­is­stofn­un gert at­huga­semd­ir við að fram­leiðsla í stöðinni sé meiri en þau 200 tonn sem starfs­leyfi heim­il­ar. Frá­vik­inu verði þó ekki fylgt eft­ir á meðan Stofn­fisk­ur vinn­ur að mati á um­hverf­isáhrif­um.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: