Vekja athygli á hárri sjávarstöðu

Athygli er vakin á hárri sjávarstöðu um og eftir helgi.
Athygli er vakin á hárri sjávarstöðu um og eftir helgi. Skjáskot/Youtube

Landhelgisgæslan vekur athygli á hárri sjávarstöðu um og eftir helgi en stórstreymt er á sunnudaginn. Um helgina er einnig gert ráð fyrir umhleypingasömu veðri með fremur lágum loftþrýstingi og því má gera ráð fyrir hærri sjávarstöðu en flóðspár gefa til kynna. 

Þetta kemur fram á vef Landhelgisgæslunnar.

„Flóðspár eru reiknaðar út frá meðalloftþrýstingi sem er 1.013 hPa (millibör) en ef loftþrýstingur er lægri en það þá hækkar sjávarborð sem nemur um 1 sentimetra fyrir hvert 1 hPa í lækkun loftþrýstings. Þá má einnig gera ráð fyrir enn meiri hækkun sjávarborðs vegna áhlaðanda þar sem vindur og alda standa af hafi,“ kemur þar fram.

Nánar er hægt að fræðast um útreiknaða sjávarhæð í aðalhöfnum hér.

mbl.is