Búið er að opna fyrir umferð um Vesturlandsveg í báðar áttir, eftir umferðarslysið sem varð í Kollafirði fyrir hádegi í dag. Tveir voru fluttir á slysadeild og eru nú á gjörgæslu.
Valgarður Valgarðsson, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, segir í samtali við mbl.is að svo virðist sem stór tómur ruslagámur hafi losnað af vöruflutningabifreið sem var á leið í norðurátt og lent á tveimur bílum, öðrum vörubíl og lítilli fólksflutningabifreið, sem komu úr gagnstæðri átt.
Hann segir að ökumenn þeirra tveggja bifreiða sem gámurinn lenti á séu báðir á gjörgæslu, annar með alvarlega höfuðáverka en hinn með annars konar áverka, ekki jafn alvarlega.
Ekki liggur fyrir hvað olli því að gámurinn losnaði af vöruflutningabifreiðinni, en Valgarður segir að það verði rannsakað. Mögulega hafi vindurinn svipt gámnum af stað þegar vörubílarnir tveir mættust, en hvasst hefur verið í Kollafirði í dag.
Um það bil tvo klukkutíma tók að hreinsa veginn, en það var gert í leiðindaveðri og höfðu langar bílaraðir myndast á Vesturlandsvegi beggja vegna við slysstað.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu varar við því að búist er við sterkum vindhviðum á Kjalarnesi allt fram undir kvöld, en vindhviður hafa slegið vel yfir 30 m/s eftir hádegi.