Forsetinn sendir hlýjar kveðjur

Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands.
Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands. mbl.is/Kristinn Magnússon

Enn vorum við minnt á ægimátt náttúruaflanna,“ skrifar Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, og sendir hlýjar kveðjur vestur á firði og einlægar þakkir til allra sem brugðust við og sinntu nauðsynlegum störfum eftir snjóflóðin á Flateyri og í Súgandafirði.

„Blessunarlega varð ekki mannskaði, annað tjón er unnt að bæta,“ skrifar forsetinn á Facebook.

Hann segir að varnargarðarnir, sem reistir voru á Flateyri eftir flóðið mikla fyrir aldarfjórðungi, hafi sannað gildi sitt þótt litlu hafi mátt muna.

Fundaði með forsætisráðherra

Á reglubundnum fundi okkar forsætisráðherra í morgun fræddi Katrín Jakobsdóttir mig um fund hennar með almannavörnum í samhæfingarmiðstöðinni í Skógarhlíð í morgun og þær upplýsingar sem þar komu fram. Sem betur fer virðist veður nú ganga niður á Vestfjörðum en áfram þarf að hafa vara á, flytja fólk og vistir og veita fólki stuðning og aðstoð eins og þörf krefur.

mbl.is