Fimm skip taka þátt í loðnuleit

Bjarni Ólafsson AK á loðnuveiðum.
Bjarni Ólafsson AK á loðnuveiðum. Ljósmynd/Daði Ólafsson

Fimm skip munu næstu daga taka þátt í leit að loðnu. Auk rann­sókna­skips­ins Árna Friðriks­son­ar taka græn­lenska skipið Pol­ar Amar­oq og Há­kon EA þátt í mæl­ing­um á loðnunni.

Bjarni Ólafs­son AK og Ásgrím­ur Hall­dórs­son SF taka þátt í verk­efn­inu sem leit­ar­skip. Þrjú fyrst­nefndu skip­in voru í Nes­kaupstað í gær og var reiknað með að öll skip­in létu úr höfn í gær­kvöldi eða síðustu nótt.

„Við ger­um ráð fyr­ir að byrja út af Litla­dýpi og leita norður með land­grunns­brún­inni og einnig á land­grunn­inu. Sam­an munu skip­in leita út af Aust­fjörðum og Norðaust­ur­landi í fyrstu at­rennu. Um borð í bæði Pol­ar Amar­oq og Há­koni verða þrír starfs­menn frá Haf­rann­sókna­stofn­un.

Því miður er veðurút­lit ekki sér­stak­lega gott en það er veður­gluggi næstu daga sem þarf að nýta vel. Því miður rík­ir ekki mik­il bjart­sýni um loðnu­vertíð en það er aldrei að vita. Loðnan hef­ur oft komið mönn­um á óvart,“ sagði Birk­ir Bárðar­son, leiðang­urs­stjóri í sam­tali á heimasíðu Síld­ar­vinnsl­unn­ar.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: