Minni háttar snjóflóð féll fyrir utan Flateyri

Bílaröð hefur myndast fyrir utan Flateyri þar sem beðið er …
Bílaröð hefur myndast fyrir utan Flateyri þar sem beðið er eftir því að Flateyrarvegur verði opnaður. mbl.is/RAX

Almannavarnadeild er nú með til endurskoðunar hvort hægt verði að opna Flateyrarveg í kvöld. Starfsmenn Vegagerðarinnar hafa verið að ryðja veginn og til stóð að opna hann klukkan 17:00 en eftir að minni háttar snjóflóð féll um fimm kílómetra fyrir utan Flateyri er óljóst hvort af því verði.

Þetta staðfestir fulltrúi Vegagerðarinnar í samtali við mbl.is.


 

mbl.is