Árangurinn nánast enginn

Tvær ungar baráttukonur. Greta Thunberg sem er frá Svíþjóð og …
Tvær ungar baráttukonur. Greta Thunberg sem er frá Svíþjóð og Natasha Mwansa sem er frá Namibíu áttu sviðið í Davos í morgun. AFP

Lofts­lagsaðgerðasinn­inn Greta Thun­berg ávarpaði í morg­un helstu kaup­sýslu­menn og póli­tísku leiðtoga heims­ins á viðskiptaráðstefn­unni í Dav­os í Sviss. Hún seg­ir að eig­in­lega ekk­ert hafi verið gert í bar­átt­unni gegn lofts­lags­breyt­ing­um þrátt fyr­ir bar­áttu henn­ar. 

„Við erum öll að berj­ast fyr­ir um­hverfið og lofts­lagið. Ef horft er á það frá víðara sjón­ar­horni hef­ur eig­in­lega engu verið áorkað. Það mun þurfa miklu meira en þetta. Þetta er aðeins upp­hafið,“ sagði hún í ávarpi sínu í morg­un.

Hægt er að fylgj­ast með beint frá Dav­os á vef Guar­di­an

mbl.is