„Allt kapp er nú lagt á að klára viðgerðir til að halda áætlun, að Bjarni verði sjófær fyrir 10. febrúar þegar hann heldur til rannsókna á ástandi sjávar,“ segir í tilkynningu á vef Hafrannsóknastofnunar um ástand rannsóknaskipsins Bjarna Sæmundssonar.
Bjarni fór í slipp 17. janúar, en 27. október 2019 varð óhapp með eina af þremur vélum Bjarna þegar vélin stoppaði með miklum hávaða. Við skoðun kom í ljós að tveir stimplar voru fastir, vélarblokkin sprungin og stimpilstöngin gengin út úr blokkinni.
„Keypt hefur verið ný vélarblokk og var Bjarni tekinn í slipp föstudaginn 17. janúar. Gera þurfti gat á síðu skipsins til að geta skipt um vélarblokk og má sjá ónýta vélina hífða út um gatið á skipinu,“ segir í tilkynningunni.