Kristján Þór situr fyrir svörum

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, situr nú fyrir svörum …
Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, situr nú fyrir svörum á opnum fundi stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis, ásamt Kristjáni Skarphéðinssyni, ráðuneytisstjóra atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins. mbl.is/Árni Sæberg

Fund­ur er haf­inn í stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefnd Alþing­is þar sem Kristján Þór Júlí­us­son, sjáv­ar­út­vegs- og land­búnaðarráðherra, kem­ur fyr­ir nefnd­ina.

Þrír þing­menn stjórn­ar­and­stöðunn­ar samþykktu á fundi nefnd­ar­inn­ar í des­em­ber að hefja frum­kvæðis­at­hug­un á því hvernig Kristján Þór hygðist láta meta hæfi sitt vegna tengsla við út­gerðarfé­lagið Sam­herja og hvort til­efni hefðu verið til slíkr­ar at­hug­un­ar fyrr í ráðherratíð hans.

Kristján Skarp­héðins­son, ráðuneyt­is­stjóri at­vinnu­vega- og ný­sköp­un­ar­ráðuneyt­is­ins, er einnig gest­ur fund­ar­ins og bú­ist er við að hann standi til klukk­an 11.

mbl.is