Áframhaldandi aukning

Laxeldi hjá Fiskeldi Austfjarða.
Laxeldi hjá Fiskeldi Austfjarða.

Sér­fræðing­ar bú­ast við áfram­hald­andi aukn­ingu á fram­leiðslu lax í sjókví­um. Fram­leiðslan eykst vænt­an­lega um 5-7 þúsund tonn í ár og fer yfir 30 þúsund tonna markið og gæti farið í 35-37 þúsund tonn á næsta ári.

Aukn­ing­in verður þó ekk­ert í lík­ingu við það sem varð á síðasta ári þegar fram­leiðsla á laxi tvö­faldaðist. Áætlan­ir þess­ar grund­vall­ast á upp­lýs­ing­um um auk­ingu í út­setn­ingu laxa­seiða í sjókví­ar. Á síðasta sumri voru sett­ar út um 9,3 millj­ón­ir seiða, tveim­ur millj­ón­um seiða meira en árið áður, sam­kvæmt upp­lýs­ing­um Mat­væla­stofn­un­ar. Raun­ar hef­ur seiðunum fjölgað takt­visst um tvær millj­ón­ir seiða á ári í þrjú ár.

Öll aukn­ing­in úr sjókví­um

Öll aukn­ing­in í fisk­eldi á síðasta ári kom úr sjókví­um og mest úr fjörðum Vest­fjarða og Aust­fjarða. Um þrír fjórðu laxa­fram­leiðslunn­ar koma frá þess­um tveim­ur eld­is­svæðum og frá fjór­um stærstu fisk­eld­is­fyr­ir­tækj­un­um. Arn­ar­lax sem er með höfuðstöðvar á Bíldu­dal er lang­stærsti fram­leiðandi laxa­af­urða. Fram­leiddi 11.700 tonn á síðasta ári sem er 23% aukn­ing frá fyrra ári. Hin sjó­eld­is­fyr­ir­tæk­in eru yngri en öll í örum vexti og fram­leiddu 4 til 5 þúsund tonn í fyrra.

Fram­leiðsla á bleikju jókst meira á síðasta ári en áætlan­ir gerðu ráð fyr­ir, eða um 29%, að því er fram kem­ur í um­fjöll­un um mál þetta í Morg­un­blaðinu í dag. Bú­ist er við áfram­hald­andi jafnri og stöðugri aukn­ingu. Mjög hef­ur dregið úr eldi á regn­bogasil­ungi hér við land en breyt­ing á því er í aðsigi því að minnsta kosti tvö fyr­ir­tæki eru að und­ir­búa eldi.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: