Loðnutorfur fundust vestur af Kolbeinseyjarhrygg og úti við landgrunnsbrúnina að Kögurgrunni nú fyrr í vikunni í leiðangri undir forystu Árna Friðrikssonar, skips Hafrannsóknastofnunar. Því til viðbótar taka Hákon EA og grænlenska skipið Polar Aamaroq þátt í leitinni. Skipin eru nú komin inn til Ísafjarðar vegna veðurs en fara vætanlega út aftur á morgun, föstudag, og þá á að leita loðnu út af Vestfjörðum alveg suður í Víkurál.
„Magnið sem við fundum er ekki mikið svo vonin um að hægt sé að gefa út kvóta og hefja veiðar er ekki endilega mikil. Við skulum þó spyrja að leikslokum,“ sagði Birkir Bárðarson fiskifræðingur í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi.
„Við erum búnir að taka heilmikla yfirferð að undanförnu, alveg frá Hvalbak fyrir austan land og nú erum við komnir vestur og erum að ljúka þessu. Förum svo aftur í febrúar og tökum þá annan svipaðan rúnt á miðunum í kringum landið. Jú, þetta er vissulega orðið spennandi – en við höfum samt sem áður – svo ég segi nú alveg eins og það er – ekki séð það magn af loðnu við landið nú að undanförnu að ég geti verið sérstaklega bjartsýnn á framhaldið,“ sagði Birkir.