Lokuðu Öxnadalsheiði í nótt

Loka þurfti Öxnadalsheiðinni í nótt vegna óveðurs og ófærðar að sögn varðstjóra í lögreglunni á Norðurlandi eystra. Lögreglan á Vestfjörðum hefur lokað Pollagötu á Ísafirði vegna sjógangs. Pollagata er lokuð við hringtorgið og Edinborgarhúsið vegna gríðarlegs sjógangs. 

Súðavíkur og Kirkjubólshlíð var lokað um miðnætti vegna snjóflóðahættu.

Eins er ófært um Þverárfjall og Vatnsskarð.

mbl.is