Ráðstefna um framtíð atlantshafslaxins er haldin í dag í Reykjavík af Verndarsvæði laxa á Norðausturlandi, sem komið var á fót af breska auðkýfingnum Jim Ratcliffe. Skipuleggjendur segja ráðstefnuna leiða „saman sérfræðinga til að ræða leiðir til að bjarga laxinum af brún útrýmingar“, að því er fram kemur í fréttatilkynningu.
Þá segir að sérfræðingar frá Íslandi, Noregi, Bretlandi, Írlandi og Kanada muni taka þátt í um ræðum um „ógnvænlega hnignun stofns Norður-Atlantshafslaxins, sem er bara um fjórðungur af því sem hann var á árunum upp úr 1970“.
„Þessi ráðstefna hjálpar til við að vekja athygli á þeirri staðreynd að Atlantshafslaxinn er nú í útrýmingarhættu. Með því að leiða saman sérfræðinga hvaðanæva að úr heiminum vonum við að finna megi nýjar lausnir til þess að snúa þróuninni við. Starfið sem unnið er hjá Verndarsvæði laxa á Norðausturlandi styður við afkomu laxins þar, en meira þarf til að koma. Við vonum að ríkisstjórnir leggi okkur líka lið í þessari viðleitni,“ segir Gísli Ásgeirsson, framkvæmdastjóri Veiðiklúbbsins Strengs.
Tekið er sérstaklega fram í tilkynningunni að verndarsvæðið leggi áherslu á að „varðveita land og vistkerfi ánna á Norðausturlandi og viðhald uppeldisstöðva Norður-Atlantshafslaxins á svæðinu“. Þá sé það von vísindamanna sem koma að aðgerðum Verndarsvæðis laxa á Norðausturlandi að „svipta hulunni af því af hverju Atlantshafslaxinn er að hverfa“.