Bera mikla ábyrgð á viðbrögðum við loftslagsvá

Jaime Nack á ráðstefnunni.
Jaime Nack á ráðstefnunni. Ljósmynd/Anton Brink

„Stjórn­end­ur og leiðtog­ar um all­an heim bera mikla ábyrgð á því að sýna for­ystu í bar­átt­unni gegn lofts­lags­vánni. Þetta er ein helsta áskor­un nú­tím­ans og ef leiðtog­ar axla ábyrgð og knýja fram ný­sköp­un á þessu sviði þá skil­ar það sér einnig í meiri viðskipta­tryggð við neyt­end­ur og hags­munaaðila.“

Þetta sagði Jaime Nack sér­fræðing­ur á sviði sam­fé­lags­ábyrgðar, á Janú­ar­ráðstefnu Festu sem hald­in var í dag í Hörpu, að því er kem­ur fram í til­kynn­ingu.

Ráðstefn­an var hald­in í sjö­unda sinn og var yf­ir­skrift henn­ar í ár „Sókn­ar­færi á tím­um al­kemíu“. Mark­miðið var að ræða þær áskor­an­ir og tæki­færi sem fel­ast í því fyr­ir fyr­ir­tæki og stofn­an­ir að breyta áhersl­um viðskipta­mód­ela með lengri tíma og heild­ar­hags­muni að leiðarljósi.

Pablo Jenkins.
Pablo Jenk­ins. Ljós­mynd/​Ant­on Brink

Auk Jaime Nack hélt Pablo Jenk­ins, ráðgjafi rík­is­stjórn­ar Costa Rica í sjálf­bærni, fram­sögu. Jafn­framt kynntu full­trú­ar Öss­ur­ar, Klappa grænna lausna, Vist­orku, Pure North Recycl­ing og Orku nátt­úr­unn­ar, veg­ferð sína og stefnu í átt að hringrás­ar­hag­kerf­inu á næstu 12 mánuðum.

Í lok ráðstefnu áttu sér stað pall­borðsum­ræður þar sem Ragna Árna­dótt­ir, skrif­stofu­stjóri Alþing­is, Tóm­as N. Möller, yf­ir­lög­fræðing­ur Líf­eyr­is­sjóðs verzl­un­ar­manna, Aðal­heiður Snæ­bjarn­ar­dótt­ir sér­fræðing­ur í sam­fé­lags­ábyrgð hjá Lands­bank­an­um, og Hug­inn Freyr Þor­steins­son, sér­fræðing­ur og eig­andi At­onJL, veltu fyr­ir sér næstu skref­um ís­lensks at­vinnu­lífs í átt að auk­inni sjálf­bærni.

Allt um­fang ráðstefn­unn­ar hef­ur verið kol­efnis­jafnað hjá Kolviði, Vot­lend­is­sjóði og UN Clima­te Neutral Now og hef­ur feng­ist vott­un þess efn­is.

Pablo Jenk­ins sagði frá veg­ferð Costa Rica í átt að auk­inn­ar sjálf­bærni en sú áhersla hef­ur skilað sér í þreföld­un á vergri lands­fram­leiðslu (GDP) á síðastliðnum tutt­ugu árum. Costa Rica hef­ur byggt upp ferðaþjón­ustu með sjálf­bærni að leiðarljósi og er talið vera leiðandi í dag á því sviði. Meðal aðgerða var að friða um fjórðung lands­ins, nýta end­ur­nýj­an­lega orku í aukn­um mæli og hefja mark­vissa skóg­rækt til að tryggja líf­fræðileg­an fjöl­breyti­leika. 

„Ég er stund­um spurð að því hvert viðskipta­tæki­færið sé í sjálf­bærni og sam­fé­lags­ábyrgð. Mitt svar er að ég hefði áhuga á að heyra rök­in fyr­ir viðskipta­tæki­fær­inu í öðru. Heim­ur­inn er að breyt­ast hratt, áskor­an­irn­ar sem blasa við okk­ur með t.d. lofts­lags­breyt­ing­um og tækniþróun eru gríðarlega stór­ar, en tæki­fær­in eru líka mjög spenn­andi og mörg. Ég tel að við séum á rétti leið, líkt og kom fram á ráðstefn­unni í dag. Verk­efnið er að hafa ásetn­ing­inn skýr­an, framtíðar­sýn­ina skýra, efla sam­taka­mátt allra, ein­stak­linga, fyr­ir­tækja og stofn­ana, í átt að auk­inni sjálf­bærni,“ seg­ir Hrund Gunn­steins­dótt­ir, fram­kvæmda­stjóri Festu, í til­kynn­ing­unni.

mbl.is