Björgunarskipið Björg tryggir varaleið Flateyringa

Björgunarskipinu Björg 2541 er ætlað að tryggja Flateyringum varaleið ef …
Björgunarskipinu Björg 2541 er ætlað að tryggja Flateyringum varaleið ef vegir skyldu lokast. Ljósmynd/Landsbjörg

„Stjórn Slysavarnafélagsins Landsbjargar ákvað í liðinni viku að verða við óskum heimamanna á Flateyri og flytja B/S Björgu 2542 vestur,“ segir í tilkynningu frá Landsbjörg en Björg lagði úr höfninni í Rifi um klukkan tíu í morgun og er nú skammt frá Flateyri.

Þá er Björgu ætlað að tryggja Flateyringum örugga leið frá höfninni á Flateyri og inn á Holtsbryggju, sem var endurbyggð eftir snjóflóðin 1995 svo að hún gæti þjónað sem varaleið fyrir Flateyringa ef vegir lokuðust í lengri eða skemmri tíma. „Þá datt engum í hug að sú staða gæti komið upp að á Flateyri yrði ekki til tiltækur bátur í slíkar ferðir og hvað þá að þeir myndu flestir eyðileggjast á einni nóttu,“ segir í tilkynningunni.

Var verkefnalaus

Fram kemur að félagsmenn Landsbjargar í Rifi hafi strax byrjað að búa björgunarskipið undir ferð til Flateyrar er fréttist að það kynni að nýtast íbúum á Flateyri. En Björg 2542 var smíðuð 1977 og hefur verið í höfninni í Rifi verkefnalaus síðan í júní 2019. Hafði henni verið skipt út fyrir yngra samskonar skip, Björgu 2742.

Það eru sjálfboðaliðar björgunarsveitarinnar Sæbjargar sem sjá um að manna skipið í þeim verkefnum sem mögulega koma upp og hefur Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra ákveðið að styrkja verkefnið með hálfri milljón sem nýtt verður til kaupa á siglingartölvu, olíu og fleira.

„Skipið verður staðsett á Flateyri fram á vorið eða svo lengi sem talin er þörf á því að hafa skipið í höfn þar til að auka öryggi fyrir íbúa staðarins,“ segir í tilkynningunni.

mbl.is