Jean Paul Gaultier, franski fatahönnuðurinn sem hannaði hinn eina og sanna keilubrjóstahaldara Madonnu í byrjun tíunda áratugarins, kom öllum að óvörum þegar hann ákvað að hátískusýning sín í ár yrði sú síðasta. Glæstur ferill hans spannar hálfa öld þar sem gleði, dirfska og jafnvel húmor einkenndu hönnun hans.
Ögraði tískuheiminum
Gaultier lauk aldrei formlegri menntun í hönnun eða fatasaumi en kom sér á framfæri með því að senda teikningar sínar til þekktra fatahönnuða í París. Árið 1970 var það Pierre Cardin sem réð hann sem aðstoðarmann sinn og sex árum síðar leit fyrsta fatalína Gaultier dagsins ljós. Götutíska og poppmenning einkenndu hefðbundnar fatalínur hans á meðan hátískuhönnun hans voru mun fágaðri en í senn óvenjulegar. Gaultier ögraði tískuheiminum gjarnan með vali sínu á fyrirsætum en á tískusýningum hans mátti sjá íturvaxnar konur, eldri karlmenn, fyrirsætur með húðflúr og lék hann sér gjarnan með hin hefðbundnu kynjahlutverk. Dæmi um eitt slíkt er þegar hann hannaði pils fyrir karlmenn um miðjan níunda áratuginn.
Ilmurinn sem lofar sælu
Margir tengja ilmvötn við Gaultier en árið 1993 kom dömuilmurinn Classique á markað og vakti líkamslögun ilmvatnsflöskunnar mikla athygli. Sumir sáu einfaldlega fyrir sér Madonnu sjálfa í keilubrjóstahaldaranum. Gaultier sagði að þetta væri ilmur sem lofaði sælu, ilmur sem fólk þekkir þig af með lokuð augun. Ilmvatnið einkennist af vanillu, munúðarfullu amber og appelsínublómum en það er enn jafnvinsælt í dag og þegar það kom fyrst á markað. Í tilefni af 50 ára afmæli tískuveldis Jean Paul Gaultier voru hannaðar tvær hátíðarútgáfur af hinum klassísku dömu- og herrailm tískuhússins. Bæði ilmvötnin koma í takmörkuðu upplagi.
Jean Paul Gaultier Classique Pin Up sækir innblástur í hina kvenlegu og skemmtanaglöðu dömu sem einkennist af glamúr og glæsileika. Líkamslöguð ilmvatnsflaskan er umvafin bleiku og glitrandi korsiletti en hún myndi sóma sér vel á hverju snyrtiborði. Ilmnóturnar byggja á vanillu og amber í bland við heitar nótur engifers og eldpipars.
Jean Paul Gaultier Le Male Aviator er herrailmur sem einkennist af ferskleika og viðarkenndum ilmnótum sem endurspegla kynþokkafulla styrk karlmannsins. Til að auka hitann enn meira er violet absolute blandað saman við.
Gamalt verður nýtt
Óhætt er að segja að síðasta hátískusýning Gaultier hafi verið stórfengleg en hún fór fram í Théâtre du Châtelet í París fyrir framan 2.500 áhorfendur. Yfir 200 flíkur voru sýndar og gengu ofurfyrirsætur fram á sýningarpallinn í bland við listamenn, kvikmyndastjörnur og annað áhrifafólk samfélagsins af öllum stærðum og gerðum. „Í þessari síðustu sýningu minni vildi ég endurspegla þráhyggjur mínar: gallabuxur, korsilett og sjóaraskyrtur,“ sagði Gaultier. Hann er þekktur fyrir að tala gegn fatasóun. „Það eru of margar flíkur til í heiminum og allt of mikið af fatnaði er hent,“ sagði Gaultier en margar flíkur þessarar sýningar voru unnar úr gömlum og notuðum fatnaði. „Þegar ég var yngri sýndi mamma mér hvernig hún saumaði sér pils úr gömlum buxum af pabba. Þetta hefur alla tíð fylgt mér á mínum ferli,“ útskýrði hann.