Þorsteinn til starfa í ráðuneytinu

Þorsteinn Sigurðsson mun nú starfa sem sérfræðingur í ráðuneytinu.
Þorsteinn Sigurðsson mun nú starfa sem sérfræðingur í ráðuneytinu. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Þor­steinn Sig­urðsson, fiski­fræðing­ur og fyrr­ver­andi sviðsstjóri upp­sjáv­ar­sviðs á Haf­rann­sókna­stofn­un, hef­ur verið ráðinn sér­fræðing­ur í sjáv­ar­út­vegs­ráðuneyt­inu. Hann gerði starfs­loka­samn­ing á Haf­rann­sókna­stofn­un í haust sam­hliða upp­sögn­um á tíu starfs­mönn­um stofn­un­ar­inn­ar.

Þor­steinn mun sinna ýms­um störf­um í ráðuneyt­inu og meðal ann­ars koma að verk­efn­um inn­an­lands og alþjóðasam­starfi sem Ísland á aðild að. Hann kom sem starfsmaður Hafró að fræðilegu starfi á sviði fiski­fræði inn­an­lands og utan og að samn­ing­um um fisk­veiðimál sem ráðgjafi stjórn­valda.

Þor­steinn er 55 ára líf­fræðing­ur frá Há­skóla Íslands og fiski­fræðing­ur frá Há­skól­an­um í Ber­gen í Nor­egi.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur: