Laxadauði í auknum mæli vegna erfiðra aðstæðna

Arnarlax er með eldi í fjörðum Vestfjarða en aðstæður í …
Arnarlax er með eldi í fjörðum Vestfjarða en aðstæður í Arnarfirði hafa verið sérstaklega erfiðar frá því í byrjun desember. Mynd úr safni. Mynd/mbl.is

Slátrun lax úr kví­um fisk­eld­is­fyr­ir­tæk­is­ins Arn­ar­lax í Hring­dal í Arnar­f­irði hef­ur nán­ast legið niðri und­an­farn­ar vik­ur með þeim af­leiðing­um að lax­inn hef­ur verið að safn­ast upp í kví­un­um og drep­ast í aukn­um mæli. Arn­ar­lax leit­ar nú leiða til að auka slátr­un­ar­magn svo hægt sé að tæma kví­arn­ar.

Þetta kem­ur fram í skrif­legu svari Arn­ar­lax til mbl.is.

Fyr­ir­tækið hef­ur verið í sam­starfi við MAST í hátt í tvær vik­ur vegna stöðunn­ar sem kom­in er upp í Arnar­f­irði og er af­leiðing þró­un­ar sem hófst í byrj­un des­em­ber. Arn­ar­lax er með lax í fimm kví­um í Arnar­f­irði og nú hafa safn­ast upp um fjög­ur þúsund tonn af laxi sem kom­inn er yfir 5 kg og því til­bú­inn til slátr­un­ar.

Erfið tíð síðan í byrj­un des­em­ber

„Við höf­um séð að það hef­ur stefnt í óefni út af því að það hef­ur hlaðist upp slát­ur­lax. Bæði hef­ur verið erfitt að ná í fisk­inn út af veðurfars­leg­um aðstæðum og eins hef­ur verið mjög erfitt að koma afurðum í burtu. Það hafa all­ir veg­ir verið lokaðir frá því í byrj­un des­em­ber,“ seg­ir Gísli Jóns­son, dýra­lækn­ir fisk­sjúk­dóma hjá MAST, í sam­tali við mbl.is.

Ef allt væri eðli­legt væri verið að slátra 80 til 100 tonn­um af laxi á dag en hún hef­ur verið tölu­vert minni meðal ann­ars vegna veðurs. Þá höfðu snjóflóð á Vest­fjörðum áhrif enda var einn bát­ur Arn­ar­lax send­ur á Flat­eyri til að aðstoða við björg­un­araðgerðir þar.

Hluti lax­ins deyr vegna sýk­inga og bakt­ería

„Síðan við þess­ar aðstæður, þegar hiti í sjó er kom­inn niður í tvær og hálfa gráðu vill fisk­ur­inn oft færa sig niður og þegar þess­ar óveðurs­lægðir eru svona djúp­ar þá eru straum­köst­in al­veg gíf­ur­leg. Við þess­ar aðstæður er lít­ill hluti fisks­ins sem nudd­ar sér við nót­ina og það er nóg til þess að bakt­erí­ur og ákveðnir sýkl­ar sem valda sár­um kom­ist í fisk­inn. Það get­ur leitt til dauða á ein­hverj­um vik­um,“ seg­ir Gísli og bæt­ir við:

„En það er bara brot af þess­um fjög­ur þúsund tonn­um. Okk­ur fannst þetta vera orðið þannig í síðustu viku að nú skyld­um við taka það skref að fá aðstoð við slátrun. Þeir hjá Arn­ar­laxi hafa verið sam­visku­sam­leg­ir við að upp­lýsa um stöðuna enda mikið í húfi.“

Bakt­erí­urn­ar eru að sögn Gísla ekki hættu­leg­ar heil­brigðum fisk­um held­ur séu þær hefðbundn­ar í þessu um­hverfi en geti leitt til veik­inda og dauða kom­ist þær í opin sár. Þegar fisk­ar deyja af slík­um völd­um get­ur það tekið fimm daga og upp í hálf­an mánuð þangað til dauður fisk­ur flýt­ur upp á yf­ir­borðið og þá þurfi að fjar­lægja hann.

Reyna að fá aðstoð við slátrun

Sam­kvæmt heim­ild­um mbl.is er verið að skoða það að reyna að fá skip frá Nor­egi til að aðstoða við slátrun en einnig er verið að skoða sam­starf við Bú­landstind á Djúpa­vogi og Bakkafrost frá Fær­eyj­um.

Í skrif­legu svari Arn­ar­lax seg­ir að fyr­ir­tækið sé með samn­ing við fyr­ir­tækið Hor­dof­or frá Nor­egi og að skip þaðan sé vænt­an­legt í næstu viku. Skipið muni þó ekki aðstoða við slátrun held­ur ein­ung­is sækja fiski­mjöl sam­kvæmt samn­ingi sem Arn­ar­lax hef­ur gert við Hor­dof­or.

mbl.is