„Það er vatn úti um allt“

Parramatta-áin flæddi yfir bakka sína og gott betur en það.
Parramatta-áin flæddi yfir bakka sína og gott betur en það. Ljósmynd/Twitter

Öfgar í veðurfari halda áfram í Ástr­al­íu. Eft­ir for­dæm­is­lausa gróður- og kjar­relda síðustu mánuði geisa nú flóð í Nýju Suður-Wales í suðaust­ur­hluta lands­ins. Úrkoma hef­ur til að mynda ekki mælst jafn mik­il í 30 ár í Syd­ney. 

Björg­un­ar­sveit­ir hafa bjargað nokkuð hundruð manns úr flóðunum og yfir 100.000 heim­ili eru án raf­magns. 

Íbúar á svæðinu hafa verið beðnir um að halda kyrru fyr­ir á meðan þeir geta, en frek­ari úr­komu er spáð út vik­una.

Frétt BBC

mbl.is