Bréf um líðan starfsmanna kom á óvart

Sigurður Guðjónsson, forstjóri Hafrannsóknastofnunar, segir bréf FÍN koma á óvart …
Sigurður Guðjónsson, forstjóri Hafrannsóknastofnunar, segir bréf FÍN koma á óvart þar sem talsvert er síðan uppsagnir starfsmanna áttu sér stað. mbl.is/Helgi Bjarnason

„Ég er ekki sátt­ur við að vera brigslaður við að bera ekki virðingu fyr­ir mínu fólki. Það er það síðasta sem ég vil heyra,“ seg­ir Sig­urður Guðjóns­son, for­stjóri Haf­rann­sókna­stofn­un­ar, í sam­tali við 200 míl­ur um bréf sem Fé­lag ís­lenskra nátt­úru­fræðinga (FÍN) sendi for­stjór­an­um í síðustu viku. Þar seg­ir að fé­lags­menn FÍN upp­lifi það að þeim sé hótað og að ágrein­ing­ur sé þaggaður niður.

Hann tel­ur bréfið ekki kalla á ein­hver sér­stök viðbrögð af hálfu Haf­rann­sókna­stofn­un­ar. „Við feng­um þetta bréf og höf­um svo sem ekki brugðist neitt við því ennþá og óvíst að við ger­um það.“

Spurður hvort hann telji erfiðan anda inn­an stofn­un­ar­inn­ar, svar­ar Sig­urður því neit­andi. „Ekki vilj­um við meina það. Hann var ekki góður – eðli­lega – þegar við þurft­um að grípa til upp­sagna og við höf­um full­an skiln­ing á því, en fólk er nú að jafna sig á því og þetta kem­ur dá­lítið á óvart að fá þetta bréf núna. Ég veit ekki hversu mikið þetta kjara­fé­lag er inn í mál­um hér, en kannski eru þeir sein­ir, á eft­ir í þró­un­inni,“ út­skýr­ir hann og vís­ar til þess að upp­sagn­ir hjá stofn­un­inni áttu sér stað í nóv­em­ber í fyrra.

Aðstæður batn­andi

Þá er ekki til­efni til þess að hefja skoðun á því hvernig sé haldið á starfs­manna­mál­um vegna bréfs­ins, að mati for­stjór­ans. „Við erum með mánaðarlega starfs­manna­fundi, það eru sviðsfund­ir að lág­marki tvisvar í mánuði og það eru ár­leg starfs­mannaviðtöl. Þannig að við erum með öll spjót úti – hlusta og hlera hvernig fólki líður og reyn­um að bæta úr þar sem það er hægt.“

Mik­il áhersla er lögð á að tryggja gott starfs­um­hverfi, að sögn Sig­urðar sem jafn­framt seg­ir aðstæður inn­an­húss hafi farið batn­andi að und­an­förnu. „Auðvitað var það ákveðið áfall fyr­ir fólk að upp­lifa þess­ar upp­sagn­ir. Það voru ekki nema fjór­ir nátt­úru­fræðing­ar sem misstu vinn­una, þetta var aðallega fólk í stoðþjón­ustu sem missti starfið. En auðvitað eru svo­leiðis mál alltaf erfið og maður fer ekki í svo­leiðis aðgerðir að gamni sínu.“

mbl.is