Fyrsta kvörtunarbréfið til Hafró

Húsnæði Hafrannsóknastofnunar við Skúlagötu.
Húsnæði Hafrannsóknastofnunar við Skúlagötu. mbl/Arnþór Birkisson

Marí­anna H. Helga­dótt­ir, formaður Fé­lags ís­lenskra nátt­úru­fræðinga, seg­ir að fé­lagið hafi ekki áður sent Haf­rann­sókna­stofn­un bréf þar sem látn­ar eru í ljós áhyggj­ur yfir stjórn­ar­hátt­um henn­ar, líkt og gert var í síðustu viku.

Í bréf­inu kem­ur fram að fé­lags­menn sem starfa hjá stofn­un­inni virðist upp­lifa „ógn­ar­stjórn­un“ frá yf­ir­mönn­um sín­um, sem sýni þeim van­v­irðingu.

„Við ger­um þetta stund­um þegar marg­ir fé­lags­menn leita til okk­ar og kvarta und­an aðstæðum á vinnustað. Þá send­um við út bréf til að ávarpa þessa stöðu og við vilj­um að stjórn­end­ur taki já­kvætt í það,“ seg­ir Marí­anna. Um­rætt bréf var af­hent á fundi fé­lags­ins með for­stjóra Haf­rann­sókna­stofn­un­ar.

Maríanna H. Helgadóttir (lengst til vinstri).
Marí­anna H. Helga­dótt­ir (lengst til vinstri). mbl.is/​​Hari

Innt eft­ir því hversu marg­ir kvörtuðu und­an aðstæðum hjá Hafró seg­ir Marí­anna að fé­lagið upp­lýsi aldrei um fjölda þeirra fé­lags­manna sem gera slíkt.

Sig­urður Guðjóns­son, for­stjóri Hafró, sagði í sam­tali við mbl.is í dag að bréfið hefði komið sér óvart en Marí­anna kveðst ekki vilja tjá sig um viðbrögð for­stjór­ans.

mbl.is