Rauði krossinn hefur opnað fjöldahjálparstöð félagsheimilinu Leikskálum í Vík í Mýrdal. Á tíunda tímanum voru um tíu manns, allt erlendir ferðamenn, saman komnir í miðstöðinni auk þriggja sjálfboðaliða, að sögn Brynhildar Bolladóttur, upplýsingafulltrúa Rauða krossins.
Ekki vitað hvort von sé á fleirum en fjöldahjálparstöðin verður opin á meðan þörf þykir.
Búið er að loka þjóðveginum undir Eyjafjöllum frá Seljalandsfossi að Vík í Mýrdal en vonskuveður er á syðsta hluta landsins.
Brynhildur segir að búast megi við að fleiri fjöldahjálpastöðvar verði opnaðar á Suðurlandi eða Suðausturlandi eftir því sem veður versnar.
Búast má við víðtækum lokunum vega og hefur Vegagerðin gefið út áætlun um mögulegar lokanir. Meðal fyrirhugaðra lokana má nefna Hellisheiði frá klukkan 2 í nótt, Reykjanesbraut frá klukkan 3 og Holtavörðuheiði og Öxnadalsheiði frá miðnætti en áætlunina í heild sinni má sjá hér.