Búið er að loka þjóðveginum undir Eyjafjöllum frá Seljalandsfossi að Vík í Mýrdal en vonskuveður er á syðsta hluta landsins. Vindur í Vík í Mýrdal fer í 26 m/s í hviðum.
Rauð viðvörun vegna ofsaveðurs tekur gildi á Suðurlandi klukkan fimm í nótt en nú þegar er farið að blása býsna hressilega.
Samkvæmt fréttaritara mbl.is í Vík er „grenjandi bylur“ í bænum og ekkert ferðaveður.
Auk þess verður rauð viðvörun í gildi á höfuðborgarsvæðinu, Faxaflóa og á Suðausturlandi frá því snemma í fyrramálið.
Ríkislögreglustjóri hefur lýst yfir óvissustigi almannavarna fyrir allt landið vegna austanaftakaveðursins sem skellur á öllu landinu í nótt.