Lágmarksmönnun á heilsugæslustöðvum

Heilsugæsla miðbæjarsins við Vesturgötu.
Heilsugæsla miðbæjarsins við Vesturgötu. mbl.is/Árni Sæberg

Allar bókaðar móttökur á starfsstöðvum heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins falla niður í fyrramálið vegna óveðursins sem er væntanlegt.

Heilsugæslustöðvar verða opnar á þessum tíma með lágmarksmönnun sem sinnir bráðavandamálum. Reynt verður að ná í þá sem eiga bókaða tíma og finna nýjan tíma eins fljótt og hægt er, að því er kemur fram í tilkynningu.

Fyrr í dag gáfu almannavarnir út veðurviðvörun þar sem fólk var hvatt til þess að vera ekki á ferðinni á meðan óveðrið gengur yfir. 

mbl.is