Morgundagurinn verður sá 12. sem veðrið raskar flugáætlunum á Keflavíkurflugvelli á um fimm mánuðum eða frá því í október og fram í febrúar. Það er ívið meira en hefur verið síðustu ár, að sögn Guðjóns Helgasonar upplýsingafulltrúi Isavia.
Öllu innanlands flugi á morgun hefur verið aflýst. Icelandair aflýsti 22 brottförum til og frá Evrópu á morgun og farþegum var boðið að endurbóka flug. Ekki er búið að fella niður flug til Kanada og Bandaríkjanna seinnipartinn á morgun. Um 1.500 af 8.000 farþegum þáðu boð um að flýta flugi sínu.
„Við erum nánast búin að endurbóka alla farþega aftur í flug. Það hefur gengið vel,“ segir Ásdís Ýr Pétursdóttir upplýsingafulltrúi Icelandair við mbl.is um farþegana átta þúsund.