Hóta úrsögn úr FÍN fáist ekki afsökun

Þrír félagsmenn Félags íslenskra náttúrufræðinga hóta því að segja sig …
Þrír félagsmenn Félags íslenskra náttúrufræðinga hóta því að segja sig úr félaginu og telja að formaður félagsins hafi vegið að mannorði þeirra. Ljósmynd/Félag íslenskra náttúrufræðinga

Þrír fé­lags­menn Fé­lags ís­lenskra nátt­úru­fræðinga (FÍN), sem jafn­framt eru sviðsstjór­ar hjá Haf­rann­sókna­stofn­un, krefjast þess að fé­lagið dragi bréf sem það sendi Hafró op­in­ber­lega til baka og biðji þá af­sök­un­ar á ásök­un­um í garð stjórn­end­anna. Verði ekki orðið við beiðninni telja þeir sig ekki eiga ann­an kost en að segja sig úr fé­lag­inu, að því er fram kem­ur í bréfi þre­menn­ing­anna til stjórn­ar FÍN dag­sett 14. fe­brú­ar sem 200 míl­ur hafa und­ir hönd­um.

Segja fé­lags­menn­irn­ir FÍN hafa með er­indi sínu, sem und­ir­ritað var af Maríönnu H. Helga­dótt­ur for­manni, til Hafró varpað fram al­var­leg­um ásök­un­um um lög­brot, huns­un, þögg­un og van­v­irðingu. Jafn­framt hafi verið gefið í skyn að inn­an Hafró viðgang­ist einelti, kyn­ferðis­legt áreiti og kyn­bund­in mis­mun­un. Auk þess sé starfs­lýs­ing­um og aug­lýs­inga­skyldu ekki sinnt.

Í bréfi fé­lags­mann­anna kem­ur fram að þeir telji formann FÍN hafi vegið að mann­orði þeirra sem bæði hef­ur valdið stofn­un­inni og þeim sjálf­um miska og tjóni. Einnig er talið að bréfið sem sent var Hafró hafi verið brot gegn siðaregl­um nátt­úru­fræðinga.

„Við för­um fram á að bréf for­manns­ins verði tekið fyr­ir og rætt í full­skipaðri stjórn FÍN, hvort ekki hafi verið ástæða til að viðhafa vandaðri vinnu­brögð og hvort ekki sé ástæða til að formaður/​fram­kvæmda­stjóri víki eða að lág­marki fái áminn­ingu enda vand­séð að hún geti komið fram­ar að mál­efn­um Haf­rann­sókna­stofn­un­ar.“

Ekki borið und­ir trúnaðar­menn

Spurt er í bréfi fé­lags­mann­anna hvort ekki hafi verið rétt­ara að trúnaðar­menn myndu leita úr­lausn­ar inn­an stofn­un­ar­inn­ar áður en FÍN kæmi að mál­um. Þá lýsa þeir undr­un yfir því að trúnaðarmaður hafi dreift „ávirðing­ar­bréfi for­manns FÍN at­huga­semda­laust“. Segja þeir mikið mis­ræmi milli þess er fram kem­ur í um­ræddu bréfi og sam­skipt­um trúnaðarmanna og vísa til tölvu­pósts sem trúnaðarmaður sendi frá sér 15. fe­brú­ar.

Í þeim tölvu­pósti, sem fylg­ir bréfi þre­menn­ing­anna, lýs­ir trúnaðarmaður FÍN hjá Hafró því að bréfið sem barst stofn­un­inni frá FÍN „var ekki samið í sam­ráði við trúnaðar­menn né var það borið und­ir okk­ur áður en það var sent“.

Þá hafi bréf FÍN „að ein­hverju leyti“ byggt á sam­tali á fundi trúnaðarmanna og FÍN 4. fe­brú­ar og „að ein­hverju leyti“ á drög­um að bréfi sem bor­in voru fram í byrj­un fund­ar. „Aðrir hlut­ar bréfs­ins frá FÍN tengj­ast ekki því sem við rædd­um á fund­in­um,“ seg­ir í tölvu­pósti trúnaðar­manns­ins sem jafn­framt tel­ur að betra hefði verið að full­trú­ar FÍN hefðu átt sam­tal við fram­kvæmda­stjórn Hafró en að bréf hafi verið sent til starfs­manna Hafró.

mbl.is