Eigendur auka framleiðsluvæntingar til Arnarlax

Morgunblaðið/Helgi Bjarnason

Fram kem­ur að rekstr­arniðurstaða Arn­ar­lax í fyrra hafi verið já­kvæð um 139 krón­ur á hvert fram­leitt kíló af laxi sem er tals­verð breyt­ing frá ár­inu 2018 þegar niðurstaðan var nei­kvæð um 161 krónu á hvert fram­leitt kíló, að því er fram kem­ur í til­kynn­ingu til norsku kaup­hall­ar­inn­ar vegna árs­fjórðungs­upp­gjörs SalM­ar, stærsta hlut­hafa Arn­ar­lax.

Þar seg­ir að síðasti árs­fjórðung­ur 2019 hafi verið já­kvæður hjá Arn­ar­laxi meðal ann­ars vegna bættr­ar nýt­ingu vinnslu­getu í landi, en slátrun laxa jókst um 46% á ár­inu og er gert ráð fyr­ir að auka fram­leiðslu­áætlun 2020 úr 10 þúsund tonn­um í 12 þúsund tonn. Bent er á að enn þurfi að gera um­bæt­ur í virðiskeðjunni, sér­stak­lega hvað varðar flutn­ings­kostnað.

32,6 millj­arða í arð

SalM­ar hef­ur ákveðið að greiða út arð sem nem­ur 21 norskri krónu á hlut eða rétt tæp­um 2,4 millj­örðum norskra króna, jafn­v­irði 32,6 millj­arða ís­lenskra króna. Var rekstr­arniðurstaða fyr­ir­tæk­is­ins á fjórða árs­fjórðungi 2019 já­kvæð um 658,1 millj­ón norskra króna, jafn­v­irði tæp­lega níu millj­arða ís­lenskra króna.

Þá tel­ur SalM­ar að fram­boð á atlants­hafslaxi á heimsvísu muni aukast um 4% á þessu ári en vegna auk­inn­ar eft­ir­spurn­ar muni hald­ast stöðug­leiki á markaði og verð hátt. Verð féll nokkuð í byrj­un árs­ins en hef­ur hækkað um 9,68% síðastliðna viku sam­kvæmt lax­vísi­tölu Nas­daq.

mbl.is