Fluttu út eldislax fyrir 1,9 milljarða

Hagstætt afurðaverð og lægra gengi krónunnar hefur stuðlað að aukningu …
Hagstætt afurðaverð og lægra gengi krónunnar hefur stuðlað að aukningu útflutningsverðmæta. mbl.is/Helgi Bjarnason

Enn eitt metið hef­ur verið slegið í út­flutn­ingi eldisaf­urða og námu út­flutn­ings­verðmæti þeirra 2,5 millj­örðum króna í janú­ar sem er mesti út­flutn­ing­ur sem verið hef­ur í janú­ar­mánuði. Um er að ræða 6% aukn­ingu í krón­um talið frá janú­ar í fyrra þegar verðmæti afurðanna nám 2,4 millj­örðum króna, að því er fram kem­ur í frétta­bréfi Sam­tak fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi.

Þar seg­ir að „á föstu gengi er aukn­ing­in aðeins minni, eða tæp 5%, þar sem gengi krón­unn­ar var rúm­lega 1% lægra nú í janú­ar en í sama mánuði í fyrra. Í tonn­um talið var aukn­ing­in þó nokkuð minni, eða tæp 2%.“

Fram kem­ur í frétta­bréf­inu að mesta breyt­ing­in sé í út­flutn­ings­verðmæti sil­ungs, en verðmæti hans í janú­ar nam 604 millj­ón­um króna, en voru 438 millj­ón­ir í sama mánuði í fyrra og var því aukn­ing­in 38%. „Er hér aðallega um bleikju að ræða, en fram­leiðsla á henni hef­ur stór­auk­ist und­an­far­in ár.

Flutt var út eld­islax fyr­ir 1,9 millj­arða króna í janú­ar sem er 5% aukn­ing frá sama mánuði 2019 þegar út­flutn­ings­verðmæti eld­islax nam 1,8 millj­örðum. Þá seg­ir að tals­verður sam­drátt­ur varð í út­flutn­ings­verðmæt­um annarra eldisaf­urða og nam verðmæti þeirra 44 millj­ón­ir króna, en var 164 millj­ón­ir í janú­ar í fyrra.

Hægt er að nálg­ast helstu töl­ur um út­flutn­ing eldisaf­urða og sjáv­ar­fangs á Radarn­um.

mbl.is