Rannsóknarskipið Árni Friðriksson lagðist í fyrradag að bryggju við Háabakka í Hafnarfjarðarhöfn, framan við hús sem brátt verður höfuðstöðvar Hafrannsóknastofnunar. Skipið var þar í sólarhring en hélt í gær í árlegt vorrall stofnunarinnar.
Hafnarfjarðarhöfn hefur gert viðlegukant framan við húsið Fornubúðir 5. Þangað er búið að leggja rafmagn, vatn og heitt vatn enda eru skip Hafró kynt með heitu vatni þegar þau liggja við bryggju.
Sigurður Guðjónsson, forstjóri Hafrannsóknastofnunar, segir að skipið hafi lagst þarna að núna til að hægt væri að reyna búnaðinn, að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag.