Loðnuvertíð verður tæplega úr þessu, miðað við hvað er orðið áliðið, að sögn Guðmundar J. Óskarssonar, sviðsstjóra uppsjávarsviðs Hafrannsóknastofnunar. Vestangöngu hefur ekki orðið vart og minnka vonir með hverjum degi um að hægt verði að gefa út loðnukvóta.
Hafrannsóknastofnun óskaði eftir auknu fjármagni til að rannsaka hrygningu loðnunnar fyrir vestan land og norðan. Guðmundur segir að áhugi sé á að vita meira um hve stór hluti loðnustofnsins hrygnir þar samanborið við það sem hrygnir fyrir sunnan land.
Ekki voru tök á að veita fé í þetta nú en leigja hefði þurft skip vegna verkefnisins. Hafrannsóknastofnun mun eiga fund með útgerðum loðnuskipa í dag og fara yfir stöðuna. Guðmundur segir að útgerðirnar ætli að skoða hvort þær geti staðið straum af rannsóknunum. Niðurstaða um það ætti að liggja fyrir fljótlega.
Bæði hafrannsóknarskipin eru nú upptekin við togararallið, að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag.