Leggja til 20% aukningu í leyfilegu eldismagni

Hafrannsóknastofnun ráðleggur að hámarkslífmassi fiskeldis verði aukinn til muna.
Hafrannsóknastofnun ráðleggur að hámarkslífmassi fiskeldis verði aukinn til muna. mbl.is/Helgi Bjarnason

Haf­rann­sókna­stofn­un ráðlegg­ur í sam­ræmi við upp­fært áhættumat að eld­is­magn verði ekki meira en 106.500 tonn á land­inu öllu sem er aukn­ing frá fyrra mati sem gerði ráð fyr­ir að há­marks­fram­leiðslu­magn fisk­eld­is yrði 71 þúsund tonn. Kom þetta fram á fundi stofn­un­ar­inn­ar í morg­un þar sem Ragn­ar Jó­hanns­son, sviðsstjóri fisk­eld­is­sviðs, kynnti nýtt áhættumat á erfðablönd­un og ráðlegg­ing­ar stofn­un­ar­inn­ar.

Sagði Ragn­ar raun­veru­lega aukn­ingu vera 20% þar sem fyrra mat miðaði við fram­leiðslu en hið nýja miði við há­marks­líf­massa sam­kvæmt áhættumati erfðablönd­un­ar. Benti hann á að sé fyrra áhættumat end­ur­reiknað á grund­velli nýj­ustu aðferð myndi fyrri ráðgjöf nema 88,75 þúsund tonn. Það er að segja að það þurfi 88,75 þúsund tonn í sjó til þess að fram­leiða 71 þúsund tonn.

Aukn­ing á Vest­fjörðum

Heild­ar­magn sem leyfi­legt er að fram­leiða á Vest­fjörðum verður sam­kvæmt ráðgjöf­inni 61.500 tonn en fyrri ráðlagn­ing nam 50 þúsund tonn­um.

Stofn­un­in legg­ur til að há­marks­líf­massi í Önund­arf­irði fari úr engu í 2.500 tonn og í Ísa­fjarðar­djúpi úr engu í 12 þúsund tonn. Þá er óbreytt­ur há­marks­líf­massi í Tálknafirði og Pat­reks­firði eða 20 þúsund tonn og á það einnig við Arn­ar­fjörð þar sem há­markið er 20 þúsund tonn. Einnig er óbreytt ráðgjöf í Dýraf­irði, 10 þúsund tonn.

Mik­il aukn­ing á Aust­ur­landi

Á Aust­fjörðum er einnig lagt til að auka leyfi­lega há­marks­fran­leiðslu úr 21 þúsund tonn­um í 42 þúsund tonna há­marks­líf­massa. Ráðlagður há­marks­líf­massi í Beruf­irði er 7.500 tonn, 12 þúsund tonn í Fá­skrúðsfirði, 16 þúsund tonn í Reyðarf­irði og 6.500 tonn í Seyðis­firði. Ekki er ráðlagt að eldi sé starf­rækt í Stöðvarf­irði.

Fyrri fyr­ir­sögn frétt­ar­inn­ar til­greindi 50% aukn­ingu í ráðlögðu eld­is­magni, tók það ekki til­lit til breyt­inga í viðmiðum Haf­rann­sókna­stofn­un­ar og hef­ur hún því verið leiðrétt í sam­ræmi við það.

mbl.is