Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur skipað nefnd þriggja óvilhallra vísindamanna til að rýna aðferðafræði sem Hafrannsóknastofnun notar við mat á burðarþoli og við gerð áhættumats erfðablöndunar. Þetta kemur fram á vef Stjórnarráðsins.
Í nefndina voru skipaðir: Gunnar Stefánsson prófessor í tölfræði við Háskóla Íslands sem jafnframt er formaður nefndarinnar, Kevin Glover er forsvarsmaður stofnerfðafræðihóps norsku hafrannsóknastofnunarinnar og dósent við Háskólann í Bergen og Bruce McAdam kennir vistfræðilega líkanagerð við fiskeldisstofnun Háskólans í Stirling í Skotlandi.
Tillögunum á að skila fyrir 1. maí næstkomandi.
„Ráðherra skal skipa nefnd þriggja óvilhallra vísindamanna á sviði fiskifræði, stofnerfðafræði og/eða vistfræði til að rýna aðferðafræði sem Hafrannsóknastofnun notar við mat á burðarþoli og við gerð áhættumats.“ Nefndin er skipuð í samræmi við þetta bráðabirgðaákvæði VII. í lögum nr. 71/2008 um fiskeldi.