Þórdís Kjartansdóttir lýtalæknir á Dea Medica svarar spurningum lesenda Smartlands. Hér fær hún spurningu frá manneskju sem er orðin leið á bingó-handleggjunum. Hvað er til ráða?
Sæl Þórdís.
Ég er með leiðinda bingó á upphandleggjum. Er hægt að lagfæra það og hvað kostar það svona sirka?
Með fyrirfram þökk,
Ein 72 ára
Sæl og takk fyrir spurninguna.
Ef þú ert með staðbundna fitu á upphandleggjum getur fitusog stundum verið nóg til lagfæringar. Ef húðin á upphandleggjum er mikil og hangandi (stundum kallað „bingó“) þarf oftast að fjarlægja hana með skurðaðgerð. Þá liggur skurðurinn frá olnboga upp að handarkrika. Til þess að meta hvor aðgerðin kæmi til greina fyrir þig er best að hitta lýtalækni á stofu. Verðið fer eftir því hvor aðgerðin yrði fyrir valinu.
Gangi þér vel og með bestu kveðjum,
Þórdís Kjartansdóttir lýtalæknir.
Liggur þér eitthvað á hjarta? Þú getur sent Þórdísi spurningu HÉR.