Framleiðsla á laxi verður aukin um 5.800 tonn í Dýrafirði að því gefnu að fyrirtækið Arctic Sea Farm (dótturfélag Arctic Fish) uppfylli skilyrði Skipulagsstofnunar um mat á umhverfisáhrifum. Alls verður því 10.000 tonna laxeldi þar.
„Niðurstaða Skipulagsstofnunar er að helstu umhverfisáhrif framleiðsluaukningarinnar felist í áhrifum á botndýralíf, mögulegum áhrifum á villta laxfiska vegna aukins álags af völdum laxalúsar og mögulegum áhrifum á villta laxastofna vegna erfðablöndunar. Jafnframt telur stofnunin að framleiðsluaukningin komi til með að hafa neikvæð samlegðaráhrif með öðru eldi á Vestfjörðum, bæði núverandi og fyrirhuguðu á villta laxa með tilliti til erfðablöndunar og á villta laxfiska vegna laxalúsar.“ Þetta kemur fram í tilkynningu.
Skilyrðin sem þarf að uppfylla eru tíu talsins og fela meðal annars í sér vöktun á súrefnisstyrk við botn, styrk næringarefna í sjó, laxalús og fuglalífi svo fátt eitt sé nefnt.