Verð á atlantshafslaxi tók dýfu á ný í síðustu viku og féll verð um 12% og stendur meðalverð nú í 58,89 norskum krónum samkvæmt vístölu Nasdaq, en það jafngildir um 777 íslenskum krónum á kíló. Þá kemur verðfallið þrátt fyrir að gengi norsku krónunnar féll nokkuð í síðustu viku. Meðalverð á laxi hefur fallið 13,51% á fjórum vikum og 24,33% á tólf vikum.
Í síðustu viku var mesta verðlækkunin í þyngdarflokkunum sjö til átta kíló og átta til níu kíló og nam lækkunin yfir 14%. Meðalverð á laxi milli þrjú og sex kíló féll um 12,43% í síðustu viku en verð hélst stöðugt vikuna á undan.