Göt á tveimur sjókvíum í Ísafjarðardjúpi

Götin uppgötvuðust við neðansjávareftirlit 19. mars og er viðgerð lokið.
Götin uppgötvuðust við neðansjávareftirlit 19. mars og er viðgerð lokið. Kort/Map.is

Mat­væla­stofn­un barst til­kynn­ing frá Sjáv­ar­eldi (Há­brún hf.) 20. mars um göt á nóta­poka tveggja sjókvía fyr­ir­tæk­is­ins í Ísa­fjarðar­djúpi. Göt­in upp­götvuðust við neðan­sjáv­ar­eft­ir­lit 19. mars og er viðgerð lokið.

Þetta kem­ur fram á vef MAST. Þar seg­ir enn frem­ur að sam­kvæmt upp­lýs­ing­um Sjáv­ar­eld­is (Há­brún­ar hf.) hafi göt­in þrjú verið um 20x30 cm hvert á um 2 metra dýpi. Í þess­um til­teknu kví­um voru í hvorri rúm­lega 26.000 regn­bogasil­ung­ar með meðalþyngd 1,1 kg. Þá seg­ir MAST að neðan­sjáv­ar­eft­ir­lit hafi áður verið fram­kvæmt 19. októ­ber sl. og var nótar­poki þá heill.

„Mat­væla­stofn­un hef­ur kallað eft­ir gögn­um og upp­lýs­ing­um er varða viðbrögð fyr­ir­tæk­is­ins og er at­vikið til meðferðar hjá stofn­un­inni. Sjáv­ar­eldi (Há­brún hf.) lagði út net til að kanna hvort strok hafi átt sér stað og var Fiski­stofa upp­lýst um málið. Net­anna var vitjað bæði á föstu­dag og laug­ar­dag. Eng­inn sil­ung­ur veidd­ist og hef­ur veiðiaðgerðum verið hætt.“

mbl.is