Landsliðskonur setja sér markmið

Hallbera Guðný Gísladóttir og Fanndís Friðriksdóttir á góðri stundu með …
Hallbera Guðný Gísladóttir og Fanndís Friðriksdóttir á góðri stundu með landsliðinu. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Knatt­spyrnu­sam­band Íslands hef­ur hafið birt­ingu mynd­banda á sam­fé­lags­miðlum sín­um þar sem um er að ræða æf­ing­ar sem krakk­ar geta fram­kvæmt ein og sér eða í litl­um hóp­um, og hvatn­ing­ar­mynd­bönd þar sem landsliðsfólk hvet­ur iðkend­ur til að halda áfram að hreyfa sig og æfa reglu­lega.

Verk­efnið er kallað „Áfram Ísland“ og mynd­bönd­in munu birt­ast dag­lega á in­sta­gram- og face­booksíðum KSÍ en þau verður einnig að finna á youtu­be-síðu sam­bands­ins. Landsliðskon­urn­ar Hall­bera Guðný Gísla­dótt­ir og Fann­dís Friðriks­dótt­ir hvetja alla iðkend­ur til að hreyfa sig, jafn­vel þó hefðbundn­ar æf­ing­ar hafa verið lagðar niður um tíma.

Hall­bera og Fann­dís, sem báðar spila með Íslands­meist­araliði Vals, segja frá því í mynd­skeiðinu hér að neðan hvaða mark­mið þær hafa á næstu dög­um og hvaða æf­ing­ar þær ætla að gera með sjálf­um sér.

mbl.is

Stönd­um sam­an

Við hjá Árvakri vilj­um vekja at­hygli á því sem vel er gert á þess­um erfiðu tím­um. Ef þú ert með góða sögu af fyr­ir­tækj­um og ein­stak­ling­um sem eru að gera gott, sendu okk­ur ábend­ingu á net­fangið stond­um­sam­an@mbl.is.

Stöndum saman