Stórri loftslagsráðstefnu SÞ frestað

Frá loftslagsráðstefnu sem Sameinuðu þjóðirnar héldu í New York í …
Frá loftslagsráðstefnu sem Sameinuðu þjóðirnar héldu í New York í fyrra. AFP

Stór lofts­lags­ráðstefna Sam­einuðu þjóðanna, COP 26, sem átti að fara fram í skosku borg­inni Glasgow í nóv­em­ber, hef­ur verið frestað vegna kór­ónu­veirunn­ar.

Bresk stjórn­völd greindu frá þessu í dag.

„Í ljósi áhrifa af völd­um COVID-19 er ekki leng­ur hægt að halda hina metnaðarfullu COP 26 í nóv­em­ber 2020,“ sagði breska rík­is­stjórn­in í yf­ir­lýs­ingu.

Til­kynnt verður síðar hvenær ráðstefn­an verður hald­in á næsta ári.

Um 30 þúsund manns, þar á meðal 200 þjóðarleiðtog­ar, áttu að taka þátt í ráðstefn­unni sem átti að standa yfir í tíu daga þar sem um­fjöll­un­ar­efnið átti að vera sú hætta sem staf­ar af hlýn­un jarðar.

mbl.is